Í bláu verkunum mínum er ég að skapa landslag sálarinnar, ásækin tóm full af þögulum löngunum. Rýmin búa yfir ómandi nærveru og í gegnum persónulega tilfinningalega skynjun kalla þau fram ákveðið hugarástand.
Verkin eru undir miklum áhrifum frá dansi. Dansi hefur byrjun, miðju og endir líkt og lífið hefur fortíð, nútíð og framtíð. Þessir þrír þættir eru duldir í verkunum mínum og minningar úr fortíðinni fléttast saman við nútíðina ásamt vonum og draumum framtíðarinnar. Ég nota tónlist og dans til að vekja sterkar minningar og líkamlega skynjun. Það að mála verður áþreifanleg athöfn, líkt og gjörningur og hver pensilstroka verður bergmál af dansi mínum, stund sem á sér stað í landslagi sálar minnar. Munúð dansins verður sýnileg í málverkinu um leið og formin hreyfast um strigann á töfrandi hátt og veita loftkennda tilfinningu.
Einnig nota ég ljósmyndirnar mínar af Íslandi til að skapa hrífandi endurminningar. Víðáttumikil og lotningafull auðn Íslands hljómar í verkunum sem eykur á dularfullt andrúmsloftið.
Vinsamlegast hafið í huga að þau áhrif sem málverkunum er ætlað að hafa þegar staðið er frammi fyrir þeim skilar sér ekki vel á ljósmyndunum.
© Maria Kristin Steinsson